ChitoCare Medical Græðandi Sprey 50 ml
- Frí sending fyrir pantanir yfir 15.000
- In stock, ready to ship
- Væntanlegt fljótlega
Primex Iceland kynnir til leiks ChitoCare® Medical Healing Sprey, lækningatæki uppfært í flokk III.
ChitoCare® Medical Græðandi Sprey- Til meðferðar á ertri og skaddaðri húð
• Verndar húðina
• Græðir minniháttar sár
• Dregur úr sviða, roða og kláða
• Hefur góð áhrif á væg brunasár
• Virkar vel á sólbruna
• Náttúrulega græðandi
ChitoCare® Medical inniheldur náttúrulegt kítósan sem er örugg, lífvirk fjölliða, einangruð úr auðlindum sjávar við Íslandsstrendur. Kítósan er undur úr hafinu og samanstendur af amínósykrum sem finnast náttúrulega í líkamanum og hefur þannig góðan lífsamrýmanleika. Kítósan myndar filmu, binst húðinni sem þarfnast verndar. Ekki þarf að fjarlægja filmuna þar sem hún brotnar niður á náttúrulegan hátt við endurnýjun húðarinnar.
Græðandi Sprey sefar einkenni svo sem kláða og roða, verndar húðina og stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar. Gott á væg sár og brunasár, sólbruna, bólur (unglingabólur), húðútbrot, þurra húð, flugnabit og húðbólgur. Áhrifarík skyndihjálp. Má einnig nota á húð til styrkingar, verndar og í forvarnarskyni. Hentar fyrir alla aldurshópa, einnig eldra fólk og börn.
ChitoCare® Medical hefur reynst einstaklega vel til að meðhöndla bit eftir lúsmý, bitmý og önnur skordýr sem leynast í náttúru Íslands.
Það dregur úr kláða, roða og öðrum óþægindum sem koma fram eftir lúsmýbit.
ChitoCare® Medical Græðandi Sprey (REF 84500) er CE merkt lækningatæki í samræmi við tilskipun ESB 93/42/EEC og reglugerð 934/2010 um lækningatæki. Smelltu hér til að sækja fylgiseðil
Við bjóðum upp á sendingu með Dropp og Póstinum.
_
Frí sending þegar verslað er fyrir 15.00 kr eða meira