Bloomin Sassy

Bloomin Sassy

      Ég keypti merkið Bloomin byrjun sumars 2022.
      Þetta eru vörur sem eru til mjög takmarkað af og er algjörlega einstakt á markaðnum.
      Ef vara selst upp mun hún ekki koma aftur.

       

      Bloomin er hannað fyrir konur af konu sem eru þreyttar á að lærin þeirra nuddist saman og myndast þannig nuddár.
      Þetta hefur í raun ekkert með stærð að gera heldur meira hvernig konur eru vaxnar.
      Einstaklegan gott að vera í þessu innan undir kjóla og þess háttar.

      Hægt að nota sem nærbuxur eða stuttbuxur.

      Það er mælt með því að þvo þær á 30 eða 40 í þvottavél fyrir viðkvæman þvott.

      Bloomin er framleitt í fjölskyldu framleiðslu fyrirtæki í Búlgaríu.
      Efnin eru þau allra bestu á markaðnum og er framleiðslan einungis að vinna samkvæmt OEKO TE viðmiðum svo þú sem viðskiptavinur getur verið 100% viss um að efnin eru testuð fyrir skaðlegum efnum. 

      Boselli er ítalskt fyrirtæki sem býr til satín stretch efnið í þeim.

      Þetta eru frábærar nærbuxur sem eru ólíkar öllum öðrum. Hönnunin er einstök ásamt efna samsetningu. Satín framan á buxunum og innan verðu lærinu en notar fallegt mesh og blúndu til að brjóta upp einfaldleikann. Ótrúlega einstök og kynþokkafull hönnun sem koma í stórum stærðum.

      En ég kynni með stolti... Bloomin Sassy!