📏 Bókaðu brjóstahaldara mælingu
Í ljósi mikilla anna í verslun og til þess að tryggja öllum viðskiptavinum okkar þá besta þjónustu og upplifun, höfum við ákveðið að innleiða bókunarkerfi fyrir brjóstahaldara mælingar.
Þetta gerir okkur kleift að veita persónulega og áreiðanlega þjónustu fyrir hverja og eina.
💖 Bókunargjald: 5.000 kr.
Þessi upphæð er ekki eingöngu bókunargjald – hún er einnig inneign sem dregst frá við kaup eftir mælingu.
*Vinsamlegast athugaðu að ef þú mætir ekki í bókaðan tíma, þá er upphæðin ekki endurgreidd.
Hægt er að hætta við eða breyta bókun allt að 12 klst fyrir bókaðan tíma.
⚠️ Ekki er hægt að bóka í mælingu með minna en 6 klukkustunda fyrirvara.
🔄 Ef bókunardagatal birtist ekki, prófaðu að hreinsa vafrakökur ("cookies") eða opna síðuna í nýjum vafra.