Algengar spurningar
Kostar að koma í mælingu?
Nei, það kostar ekkert að koma í brjóstahaldaramælingu hjá okkur.
Það er þó hægt að bóka tíma fyrir 5.000 kr., sem nýtist að fullu sem inneign í versluninni.
Á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum getur verið mikið að gera og myndast oft röð. Biðin getur orðið 20–40 mínútur.
Með því að bóka tíma sleppur þú við röðina.
Hvað gerist í brjóstahaldaramælingu?
Í mælingu hjá Sassy mælum við þig og hjálpum þér að finna rétta stærð og rétt snið fyrir þinn líkama.
Við sýnum þér líka hvernig á að stilla brjóstahaldarann rétt svo hann veiti sem bestan stuðning og passi vel.
Við prófum mismunandi brjóstahaldara og skoðum hvernig þeir sitja á þér. Markmiðið er að finna haldara sem styður vel, passar líkamsforminu þínu og lætur þér líða vel.
Stærðin ein og sér segir ekki alla söguna – sniðið skiptir líka miklu máli.
Hvernig finn ég rétta stærð?
Þú getur skoðað stærðartöfluna okkar á vefnum. Við erum einnig með stærðartöflur inni á hverri vöru.
Ef þú ert á milli stærða er oft betra að velja stærðina fyrir ofan.
Þú getur líka sent okkur skilaboð og við aðstoðum þig – engin spurning er heimskuleg.
Get ég skilað vöru?
Já, það er hægt að skila eða skipta öllum vörum hjá okkur nema nærbuxum, sokkum og sokkabuxum.
Varan þarf að vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og með öllum miðum á.
Samkvæmt tilmælum frá heilbrigðiseftirlitinu getum við því miður ekki tekið við skilum eða skipt á nærbuxum, sokkum eða sokkabuxum.
Af hverju má ekki skila nærbuxum?
Af hreinlætisástæðum og samkvæmt tilmælum frá heilbrigðiseftirlitinu er ekki hægt að taka við nærbuxum eftir að þær hafa verið sendar til viðskiptavina.
Þetta er gert til að tryggja öryggi og hreinlæti fyrir alla viðskiptavini.
Hversu langan tíma tekur sending?
Við tökum saman pantanir alla virka daga og laugardaga kl. 9–10. Pantanir sem berast fyrir þann tíma eru yfirleitt pakkaðar samdægurs.
Dropp afhendir oft samdægurs á stórhöfuðborgarsvæðinu.
Sendingartími innanlands er yfirleitt 1–2 dagar.
Sendið þið um allt land?
Já, við sendum pantanir um allt land með Dropp og Póstinum.
Get ég sótt pöntun í verslun?
Já, þú getur valið að sækja pöntunina í verslun okkar þegar þú klárar pöntunina á vefnum.
Hversu oft þarf að skipta um brjóstahaldara?
Það fer eftir notkun og umhirðu, en líftími brjóstahaldara er oft um 90 notkunarskipti. Eftir það er teygjan yfirleitt farin að gefa eftir og stuðningurinn minnkar.
Til að lengja líftímann er gott að eiga nokkra brjóstahaldara og skipta á milli þeirra.
Ef haldarinn byrjar að renna upp á baki, missa lögun eða veita minni stuðning, er oft kominn tími á nýjan.
Hvernig þvæ ég brjóstahaldara?
Best er að handþvo brjóstahaldara í volgu vatni með mildu þvottaefni.
Ef þú notar þvottavél skaltu setja haldarann í þvottanet og velja viðkvæmt prógramm.
Ekki setja brjóstahaldara í þurrkara.
Af hverju passa brjóstahaldarar svona mismunandi?
Brjóst eru mismunandi að lögun, stærð og staðsetningu.
Þess vegna er ekki einn haldari sem hentar öllum. Rétt snið getur skipt jafn miklu máli og rétt stærð.
Af hverju versla viðskiptavinir brjóstahaldara hjá Sassy?
Við erum með eitt stærsta úrval brjóstahaldara á Íslandi og bjóðum upp á fjölbreytt snið fyrir mismunandi líkama.
Við leggjum mikla áherslu á ráðgjöf og mælingar og hjálpum þér að finna haldara sem passar vel og veitir réttan stuðning.