Bókun staðfest
Þú ert bókuð í brjóstahaldaramælingu hjá Sassy 🤎
Við hlökkum til að taka á móti þér!
Brjóstahaldaramæling snýst ekki bara um að finna tölu og bókstaf — heldur að finna haldara sem situr rétt, veitir góðan stuðning og þér líður vel í.
Til að fá sem mest út úr tímanum eru hér nokkur atriði sem gott er að hafa í huga áður en þú mætir:
Mættu endilega í uppáhalds haldaranum þínum
Ef þú átt brjóstahaldara sem þér líður sérstaklega vel í, komdu endilega í honum.
Þunnur, aðsniðinn bolur er frábær
Ef þú getur, mættu í frekar þunnum og örlítið aðsniðnum bol. Þá getum við auðveldlega séð hvernig mismunandi brjóstahaldarar koma út undir fötum.
Þú þarft ekki að vita stærðina þína
Og það er alveg sama hvað stendur á haldaranum sem þú ert í núna. Stærðir geta verið mjög mismunandi eftir merkjum og sniðum. Við byrjum bara þar sem þú ert og finnum það sem passar þér.
Segðu okkur hvað skiptir þig máli
Ertu að leita að meiri stuðningi? Haldara sem sést ekki undir bol? Eitthvað fallegt? Eða bara haldara sem þú gleymir að þú sért í?
Það er ekkert „rétt“ svar — því meira sem við vitum um hvað þú vilt, því betur getum við hjálpað þér.
Það er eðlilegt að vera smá óörugg
Við vitum að það getur verið persónulegt að fara í brjóstahaldaramælingu. Þú stjórnar alltaf ferðinni. Við útskýrum hvað við erum að gera, hlustum á þig og þú þarft aldrei að gera neitt sem þér líður ekki vel með.
Og eitt að lokum…
Ekki hafa áhyggjur af því hvernig þú „átt“ að líta út þegar þú mætir.
Brjóst eru jafn ólík og við erum mörg — mismunandi lögun, stærð, staðsetningu og oft ekki alveg eins sitt hvoru megin. Það er allt fullkomlega eðlilegt.
Þú átt ekki að passa í brjóstahaldara.
Hann á að passa á þig. 🤎
Við hlökkum til að sjá þig hjá Sassy.